Á Altari Meistarans

Wormlust

Compositor: Não Disponível

Aldauði og gnístur tanna
þÚ hefur vakið meistarann
Lagt er á höfuð hans ennisdjásn; líkneski dýrsins
Skarlatsrautt -purpurar gimsteinar perlur
Á altari meistarans er gullbikar fullur viðurstyggðar
Brimfullar eru þessar skálar reiðinnar
Hann drekkur þjáninguna þína og árvökul á þér eru hans augu
Athygli hans jafn voðaleg og rödd ofan úr gröfinni
Sú rödd sem lúðrablástur
Herlúðrar hljómandi úr kosmískum fjarska
Hann gerir hreiður úr iðrum þínum
Tómarúm úr hjarta þínu
Hann er klæddur sólinni og virðist snertur af eldi
Umlykjandi skuggar líkastir grimmu svartnættinu
Táknin þau öll öskra að seiðurinn hefur verið rofinn
Að lyklar undirdjúpanna hafi á svipstundu umbreyst í hlekki
Altarið sem þú hafðir ætlað sem fangelsi hefur orðið þín eigin gröf

©2003- 2024 lyrics.com.br · Aviso Legal · Política de Privacidade · Fale Conosco desenvolvido por Studio Sol Comunicação Digital